Í febrúar lengjast dagarnir hratt. Ökumenn þurfa að hafa í huga að þegar sólin er lágt á lofti geta skapast krefjandi aðstæður við akstur. Yfir háveturinn má búast við öllum veðrum og að skjótt skipast veður í lofti. Hlýr og skjólgóður vetrarklæðnaður er nauðsynlegur. Norðurljós sjást á himni.
Hvað þarf ég að taka með?
- Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
- Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
- Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
- Flíspeysa/létt ullarpeysa
- Regn-/vindheldur jakki og buxur
- Sterkir gönguskór með góðum sóla
- Sólgleraugu
- Vettlingar
- Trefill
- Húfa
- Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
- Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
- Hlýir sokkar eða göngusokkar(sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
- Sundföt