YFIR 600 ÞÁTTTAKENDUR FRÁ 30 LÖNDUM Á VESTNORDEN Á AKUREYRI
YFIR 600 ÞÁTTTAKENDUR FRÁ 30 LÖNDUM Á VESTNORDEN Á AKUREYRI
Ferðakaupstefnan Vestnorden Travel Mart var haldin dagana 2-4. október á Akureyri en hún er einn stærsti viðburður í ferðaþjónustu sem haldinn er á Íslandi.
Kaupstefnan er haldin af Ferðamálasamtökum Norður-Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála.
Eliza Reid, forsetafrú og sendiherra ferðamála hjá Sameinuðu þjóðunum setti kaupstefnuna.
Á kaupstefnunni voru yfir 600 þátttakendur frá 30 löndum, þar af 70 nýir erlendir ferðasöluaðilar. Samankomin voru öll helstu ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi, auk ferðaþjónustuaðila frá Grænlandi og Færeyjum, sem kynntu vöruframboð sitt fyrir öðrum ferðasöluaðilum á staðnum. Kaupstefnan býður því upp á frábært tækifæri til að kynna Ísland sem áfangastað þá tvo daga sem hún stendur yfir. 11 fyrirtæki frá Vesturlandi tóku þátt í kaupstefnunni þetta árið.
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu, segir:
„Það er gott að vera hér á Norðurlandi með ferðakaupstefnuna í ár og það er hugur í öllum þátttakendum. Hér eru ferðaþjónustuaðilar hvaðanæva úr heiminum sem selja ferðir eða hafa hug á því að hefja sölu, að kynnast löndunum þremur og því sem þau hafa upp á að bjóða. Verðmæt viðskiptasambönd verða til og önnur styrkjast. Vestnorden er svo sannarlega mikilvægur vettvangur til þess að efla ferðaþjónustuna á öllum sviðum og viðhalda því sem er. Það er líka frábært að sjá hvernig ferðaþjónustan hér á Norðurlandi hefur tekið höndum saman í þessu verkefni og unnið með okkur að því að gera kaupstefnuna sem árangursríkasta.“
Í ár gafst þátttakendum í fyrsta sinn kostur á að fara í skoðunarferð hluta úr degi á meðan kaupstefnan stóð yfir. Í þeim gafst þátttakendum einstakt tækifæri á að ræða mögulegt samstarf við nýja viðskiptafélaga, á meðan Norðurland er kannað. Ferðakaupstefnan var haldin í góðu samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands, Akureyrarbæ, Isavia og Air Iceland Connect.
Áherslur kaupstefnunnar í ár voru sjálfbærni og ábyrg ferðahegðun og því var „The Icelandic Pledge“ áberandi á sýningunni. Þar eru ferðamenn hvattir til að samþykkja atriði sem stuðla að ábyrgri ferðahegðun, svo sem að bera virðingu fyrir náttúrunni, að keyra ekki utan vega, eða koma sér ekki í hættulegar aðstæður við að taka myndir. www.inspiredbyiceland.com/icelandicpledge/