Tímabundin útvistun á samfélagsmiðlum Visit West Iceland
Haukey slf. tekur tímabundið við samfélagsmiðlum Visit West Iceland.
31.01.2025

Margrét Björk, fagstjóri áfangastaða- og markaðssviðs SSV og Thelma Harðardóttir við undirritun samnings.
Markaðsstofa Vesturlands hefur ákveðið að útvista samfélagsmiðlum Visit West Iceland tímabundið til eins árs og mun Haukey slf. taka við umsjón þeirra 1. febrúar næstkomandi. Um er að ræða Facebook- og Instagram-síður Visit West Iceland, sem gegna lykilhlutverki í markaðssetningu áfangastaðarins gagnvart erlendum ferðamönnum.
Verkefninu stýrir Thelma Harðardóttir fyrir hönd Haukeyjar slf. Thelma er enginn nýgræðingur í markaðssetningu á áfangastaðnum, en hún starfaði hjá markaðsstofunni á árunum 2019–2022 og hefur því dýrmæta þekkingu á svæðinu og markaðssetningu þess.
Við bjóðum Thelma velkomna aftur til starfa!