Hjólareiðakeppnin Grefillinn í Borgarfirði um helgina
Hjólreiðakeppnin Grefillinn verður haldin annað árið í röð núna á laugardaginn, 20. ágúst.
18.08.2022
Hjólreiðadeild Breiðabliks bendir á að næstkomandi laugardag 20. ágúst fer fram malarhjólreiðakeppnin Grefillinn um uppsveitir Borgarfjarðar þar sem samtals 200 hjólarar taka þátt.
Hér er hægt að sjá nánari upplýsingar um leiðirnar, en bæði eru farnar 100 og 200 km.
Vel er þegið að fá stuðning frá vegfarendum, bæði í formi hvatningar og tillitssemi.
Viðburðurinn hefst kl. 7.00 frá Krauma og er gert ráð fyrir að síðustu þátttakendur skili sér þangað aftur um kl. 20:00.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um viðburðinn, leiðirnar eða leyfisbréfum Lögreglunnar og Vegagerðarinnar, þá endilega hafið samband hér.