Grundarfjörður
Grundarfjörður á Snæfellsnesi er heimabær Kirkjufells sem er eitt af þekktustu fjöllum Íslands ef ekki heimsins alls. Ekki er óalgengt að erlendir ljósmyndarar heimsæki Ísland í þeim tilgangi einum að mynda þetta einstaka fjall. Kirkjufell hefur meira að segja farið með hlutverk í stórum Hollywood myndum.
Þegar ferðamenn, og þeim fer fjölgandi, hafa sett lokið á linsuna við Kirkjufellið komast þeir fljótt að því að Grundarfjörður hefur ekki einungis upp á stórkostlega fallegt fjall að bjóða. Umlukin stórkostlegri náttúru með fegurstu fossum landsins og stórkostlegu dýralífi kúrir bærinn við fjallsræturnar þar sem Helgrindur tróna við himinn.
Ekki er óalgengt að sjá vinsæla gesti úr hafi líta við og sýna sig. Má þar helst nefna seli og háhyrninga og stundum sést til Hafarnarins á flugi. Á fallegum sumardögum geta gestir farið í siglingu, notið stórfenglegs útsýnis, rennt fyrir fisk, kíkt á lunda og aðra sjófugla. Ef hafið heillar ekki er hægt að fara í hringferð um Snæfellsnesið.
Segja má að Grundarfjörður sé miðbær Snæfellsness, liggur mitt á milli Stykkishólms og Ólafsvíkur á norðanverðu Snæfellsnesi. Í bænum er mikið úrval af gististöðum, hótel, hostel, heimagisting, sumarhús og svo auðvitað tjaldsvæðið upp með ánni.
Sundlaugin er aðeins einn af áhugaverðri afþreyingu sem Grundarfjörður hefur upp á að bjóða. Gönguleiðir liggja upp í fjallgarðinn, stuttar og langar, sumar yfir í Staðarsveit. Einnig má nefna golfvöllinn, hestaleigur, kajakleigu, kaffihús, veitingastaði og upplýsingamiðstöð ferðamanna. Matvöruverslun, áfengisverslun og apótek eru á sama stað og bensínstöð og stoppistöð Strætó.
Þrátt fyrir að flestir ferðamenn komi landleiðina þá koma þúsundir á hverju ári með tugum skemmtiferðaskipa sem leggja að í Grundarfjarðarhöfn.
Á bæjarhátíðinni, Á góðri stund, sem haldin er síðustu helgina í júlí, skrýðist bærinn hverfalitunum sem eru rauður, blár, gulur og grænn. Hátíðin er sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem gestir á öllum aldri ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Grundarfjörður tekur vel á móti ykkur. Verið velkomin.