Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Samþykkja yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu

Á morgun munu yfir hundrað fyrirtæki hér á landi taka höndum saman og skrifa undir yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu.

Á morgun munu yfir hundrað fyrirtæki hér á landi taka höndum saman og skrifa undir yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu. Verndari verkefnisins verður Guðni Th. Jóhannesson forseti. Það eru Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Íslenski ferðaklasinn sem standa að verkefninu í samstarfi við Ferðamálastofu, SAF, Íslandsstofu, Stjórnstöð ferðamála, Markaðsstofur landshlutanna, Höfuðborgarstofu og Safetravel. Ábyrg ferðaþjónusta er hvatningarverkefni um að fyrirtæki tengd ferðaþjónustu sammælist um nokkrar skýrar og einfaldar aðgerðir um ábyrga ferðaþjónustu. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að því að Ísland verði ákjósanlegur áfangastaður ferðamanna um ókomna tíð sem styður við sjálfbærni fyrir komandi kynslóðir þjóðarinnar.

Áhersluþættirnir í verkefninu eru að ganga vel um og virða náttúruna, tryggja öryggi gesta og koma fram við þá af háttvísi, virða réttindi starfsfólks og hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið.

Markmið hvatningarverkefnisins er m.a að styðja við ferðaþjónustufyrirtæki sem vilja vinna markvisst að sjálfbærni og samfélagsábyrgð. Þá skal setja fram skýr skilaboð frá fyrirtækjum um að þau vilji vera ábyrg og draga fram það sem vel er gert á sviði sjálfbærni og samfélagsábyrgðar í ferðaþjónustu. Loks á samstarfið að vera hvatning fyrir fyrirtæki sem ekki eru byrjuð að huga að sjálfbærni og samfélagsábyrgð til að taka sig á. Yfirlýsingunni verður fylgt eftir með fræðsludagskrá fyrir fyrirtæki um samfélagsábyrgð og sjálfbærni.