RÁÐSTEFNA MARKAÐSSTOFA LANDSHLUTANNA (MAS) UM DREIFINGU FERÐAMANNA
RÁÐSTEFNA MARKAÐSSTOFA LANDSHLUTANNA (MAS) UM DREIFINGU FERÐAMANNA
Markaðsstofur landshlutanna (MAS) halda árlega ráðstefnu um málefni ferðaþjónustunnar í samstarfi við Deloitte. Ráðstefnan verður haldin í Iðnó, 15. september n.k. kl. 13-16.
Dagskráin er fjölbreytt og er að finna hér fyrir neðan. Þátttaka er án endurgjalds en vinsamlegast skráið ykkur hér.
Dreifing ferðamanna - Framtíð íslenskrar ferðaþjónustu á landinu öllu
Fundarstjóri: Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.
Ávarp Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Stóra myndin – ferðaþjónusta til framtíðar
Staða mála og horfur – ferðaþjónustan spurð - Björn Ingi Victorsson, Deloitte
Dreifing ferðamanna – áhersluverkefni í Vegvísi - Óskar Jósefsson framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála
Ferðamaðurinn kemur… Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður, ferðaþjónusta og skapandi greinar, Íslandsstofa
Ferðamenn um land allt – hvað er nýtt? Ólöf Ýrr Atladóttir Ferðamálastjóri
Kaffi
Staða landshlutanna – innviðir, stefna, aðgerðir
Er engin afþreying?, Díana Mjöll Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Tanni Travel og formaður Ferðamálasamtaka Austurlands
Vegagerðin og ferðaþjónusta til framtíðar - Einar Pálsson, forstöðumaður þjónustudeildar Vegagerðarinnar
Er rétt gefið? Sjónarhorn sveitarfélagsins - Jón Óskar Pétursson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps
Ferðamaðurinn er gestur Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála
Hænan eða eggið? – Kári Viðarsson, leikhússtjóri Frystiklefans
Pallborðsumræður - Haraldur Ingi Birgisson Forstöðumaður viðskipta- og markaðstengsla Deloitte
Í lok ráðstefnunnar býður Deloitte upp á veitingar