Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Jómfrúarsigling Akraness í gær

Um klukkan hálf sex í gærdag lagði ferjan Akranes af stað í jómfrúarsiglingu sína til Akraness. Ferjan mun síðan hefja áætlunarsiglingar á milli Reykjavíkur og Akraness mánudaginn næstkomandi, 19. júní og með því hefjast fyrstu ferjusiglingar á milli sveitarfélaganna frá því Akraborgin hætti að ganga árið 1998. Mikill hátíðarbragur var yfir jómfrúarsiglingunni og tók mikill fjöldi Skagamanna á móti ferjunni þegar hún lagði að gömlu Akraborgarbryggjunni. Á bryggjunni var boðið upp á grillaðar pylsur, hoppukastala og þá lék þjóðlagasveitin Slitnir strengir nokkur lög.

Borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson tók til máls í tilefni dagsins og sagði að ferjan, sem hann vildi kalla Akraborg, boðaði mikil tímamót. Hann talaði um að ferjan tengdi Reykjavík og Akranes enn frekar saman og bætti því við að Reykjavík ætti ekki í samskiptum við neitt sveitarfélag í jafnmiklu bróðerni og Akranes og benti í því samhengi á fyrirtækin Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafnir. Þrátt fyrir að litið sé á siglingarnar sem tilraunarverkefni til sex mánaða lítur Dagur björtum augum á framhaldið og segir ferjuna vera fyrsta liðinn í vatnastrætó sem tengja á svæði í Faxaflóa miðbænum. Hugmyndir eru uppi um að hægt sé að tengja Grafarvog við miðbæinn með sambærilegum siglingum.

Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi Akraness sagði ferjuna mikla samgöngubót fyrir Skagamenn enda tekur siglingin í miðbæ Reykjavíkur aðeins 25 mínútur en í bíl tæki ferðin tæpan klukkutíma. Ítrekaði Rakel fyrir Skagamönnum að Sæferðir, fyrirtækið sem sér um ferjuna, hafi lofað að hlusta á raddir fólks á svæðinu hvernig ferjan yrði best nýtt. Hún sagði að fólkið á svæðinu ætti að koma skoðunum sínum á ferðum ferjunnar á framfæri.

Að loknum ræðuhöldum á Akranesi bauðst bæjarbúum að fara í stutta siglingu með ferjunni. Margir voru spenntir fyrir því og fórum um 300 manns í siglingu í þremur ferðum. Allir virtust vera sammála um að það kæmi þeim á óvart hversu hraðskreið ferjan væri.

Eins og áður segir hefjast áætlunarferðir ferjunnar á mánudaginn næsta. Ferjan tekur 110 farþega og komst Dagur B. svo að orði að ferjan væri eins og félagsheimilið í Með allt á hreinu; þar sem hún virðist lítil að utan en plássið inni í henni væri mjög mikið. Fyrst um sinn eru þrjár áætlunarferðir alla virka daga; frá Reykjavík 6:30, 10:30 og 17:30 en frá Akranesi 7:00, 11:00 og 18:00.