Fundað með frambjóðendum um ferðamál
„Ætla stjórnmálin að sitja hjá?“ er yfirskrift opins fundar með stjórnmálamönnum í Norðvesturkjördæmi þar sem fjallað verður um ferðaþjónustu. Fundurinn verður í Hjálmakletti í Borgarnesi annað kvöld, fimmtudaginn 13. október klukkan 20. Bein útsending frá fundinum verður á sjónvarpsstöðinni N4 og á saf.is
„Í aðdraganda alþingiskosninga standa Samtök ferðaþjónustunnar fyrir opnum fundum um stöðu ferðaþjónustunnar í öllum kjördæmum. Tilefnið er að ræða stöðu ferðaþjónustunnar í hverju kjördæmi og þau tækifæri og áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í þeirri vaxandi atvinnugrein sem ferðaþjónustan er. Ætla stjórnmálin að nýta þau tækifæri sem í ferðaþjónustunni felast á næsta kjörtímabili eða sitja hjá? Það er afar mikilvægt að við sem lifum og hrærumst í ferðaþjónustunni nýtum tækifærið og mætum á fundina,“ segir í tilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar.