Beint frá býli dagurinn um allt land
Beint frá býli dagurinn verður haldinn um allt land þann 18. ágúst kl. 13-16 og verður viðburður haldinn í hverjum landshluta fyrir sig í tilefni dagsins. á Vesturlandi mun Grímsstaðaket á Grímsstöðum í Reykholtsdal opna býli sitt fyrir gestum með fjölbreyttri dagskrá í samvinnu við heimavinnsluaðila og smáframleiðendur í landshlutanum.
13.08.2024
Þann 18. ágúst opna Grímsstaðir í Reykholtsdal sem rekur Grímsstaðakjöt - kjötvinnslu býli sitt fyrir gestum í tilefni af Beint frá býli deginum sem er nú haldinn annað árið í röð í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV).
Þann dag munu hvorki meira né minna en 18 heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur matvæla úr landshlutanum mæta á Grímsstaði til að kynna og selja vörur sínar.
- Matarmarkaðurinn verður í tjöldum á svæðinu
- Gestir fá ókeypis kökusneið, kaffi og djús
- Veitingasala
- Leiðsögn um sláturhúsið og kjötvinnsluna
- Heimalningar og hestar (teymt undir)
- Traktoralest, drullubú og og fjölbreytt leiktæki
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eiga skemmtilegan dag saman!