Áfangastaðaáætlun Vesturlands fer vel af stað
Vinna við Áfangastaðaáætlun ferðamála á Vesturlandi (ÁFÁ Vest.) er nú farin að skila árangri við framþróun ferðamála á Vesturlandi. Búið er að skila inn til Ferðamálastofu (FMS) sóknaráætlun ferðamála þ.e. niðurstöðum úr áætlunarvinnunni, framtíðarsýn og aðgerðaáætlun Áfangastaða-áætlunar ferðamála á Vesturlandi 2018-2020. Það var þó gert með fyrirvara um að eftir væri að kynna þessa vinnu og niðurstöður áætlunarinnar fyrir nýjum sveitarstjórnum á Vesturlandi. Reiknað er með að farið verði í heimsóknir til sveitafélaganna að afloknum sumarfríum í lok ágúst til að kynna ÁFÁ Vest. og þau verkefni sem framundan eru í þessari vinnu. Eftir þessar heimsóknir til sveitarfélaganna og yfirferð á Áfangastaðaáætluninni ef ástæða þykir til, verður gerð myndræn og aðgengileg samantekt úr Áfangastaðaáætlun Vesturlands og það plagg kynnt fyrir aðilum í ferðaþjónustu og almenningi á öllum svæðum á Vesturlandi.
Sameiginleg áhersluatriði framtíðarsýnar og meginmarkmið Áfangastaðaáætlunar Vesturlands sem unnin voru á opnum fundum og af svæðisráði og vinnuhópum áfangastaðaáætlunar á öllum vinnusvæðum á Vesturlandi eru eftirfarandi:
Úr framtíðarsýn |
Meginmarkmið |
Vesturland hefur sterka og jákvæða ímynd sem heilsárs áfangastaður með fjölbreytta náttúru, sögu, menningu, mannlíf og matarauð og er því eftirsóttur valkostur fyrir íbúa og gesti. |
|
Gestir og heimamenn geta ferðast um svæðið upplýstir, með vitund, virðingu og sátt varðandi viðkvæma náttúru, lífríki, samfélag og umhverfi. |
|
Áhersla er á að öryggi fólks, náttúru og lífríkis sé tryggt, áningarstaðir vel úthugsaðir, einnig að upplýsingar og góð þjónusta sé til staðar. |
|
Samgöngur í landshlutanum eru góðar bæði til sjós og lands allt árið og áhersla er á öryggi og gott viðhald vega. |
|
Grunnþjónusta er góð á Vesturlandi og jákvæð viðhorf íbúa til ferðamála eru ríkjandi. |
|
Sjálfbær ferðaþjónusta með áherslu á náttúruvernd, þjónustu- og vöruval úr héraði er í hávegum höfð til að stuðla að gæða náttúru- og menningar upplifun til framtíðar á Vesturlandi. |
|
Í framhaldi af skilum á áðurnefndri sóknaráætlun ÁFÁ Vest., bauð Ferðamálastofa Markaðsstofu Vesturlands að gera samning um vinnslu á fjórum framhaldsverkefnum af ÁFÁ vinnunni. Þetta eru verkefni sem unnin verða samkvæmt þeim áherslum sem lagðar voru í vinnu við ÁFÁ Vest. og eru eftirfarandi:
- Að forgangsraða uppbyggingu göngu-, reið- og hjólaleiða á Vesturlandi.
- Að forgangsraða innviðauppbyggingu á áningar- og áfangastöðum á Vesturlandi.
- Að stuðla að vöruþróun og klasasamstarfi menningar- og sögutengdrar ferðaþjónustu á Vesturlandi.
- Að koma saman vinnuhóp hagaðila í klasasamstarf um hæglætisferðamennsku í Dalabyggð.
Markaðsstofa Vesturlands fær veglegan styrk úr verkefnasjóði Ferðamálastofu( 20. milljónir) til að vinna þessi verkefni á árunum 2018-2020. Reiknað er með að vinna við þessi verkefni fari á fullt skrið eftir sumarleyfi um miðjan ágúst.
Einnig var óskað eftir að Vesturlandsstofa sendi inn til Ferðamálastofu greinargerð með 3-6 áherslu- og forgangsverkefnum sem vilji væri til að vinna á hverju svæði á Vesturlandi á tímabilinu 2018-2020. Þennan lista á að nota til hliðsjónar við úthlutun fjármagns og afgreiðslu styrkumsókna á umræddu tímabili. Skýrt var tekið fram við skil á þessum áherslu- og forgangslista að það stæði fyrir dyrum vinna við gerð forgangslista um uppbyggingu bæði útivistarstíga og áningastaða á Vesturlandi og gæti sú vinna breytt þeim áhersluverkefnum sem send voru inn.
Það eru því spennandi tímar framundan við verkefnavinnu og vöruþróun ferðamála á Vesturlandi og mikilvægt að þeir sem hafa áhuga og hag af þessari vinnu leggi sitt að mörkum og vinni að þessum verkefnum með Markaðsstofu Vesturlands.