Garðavöllur er 18 holu völlur í útjaðri Akraness. Landið er frekar slétt en klapparholt, tjarnir, glompur og trjágróður setja sinn svip á völlinn sem er mjög krefjandi og skemmtilegur.
Garðavöllur hefur skipað sér í sess meðal bestu valla landsins og þar hafa verið haldin mörg stórmót.
Golfklúbburinn Leynir var stofnaður árið 1965. Árið 2000 var völlurinn stækkaður í 18 holur.
Par vallarins er 72, völlurinn er 6006 m af hvítum teigum, 5560 m af gulum og 4593 m af rauðum teigum.
Veitingaaðstaða er í klúbbhúsi. Nauðsynlegt er að panta rástíma á www.golf.is eða hafa samband við klúbbhús.
Nafn golfvallar: Garðavöllur
Holufjöldi: 18
Par: 72