Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Litla kartöfluhátíðin

14. september kl. 14:00
Laugardaginn 14. september verður í þriðja sinn haldinn fyrirlestur um kartöfluna í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu á Görðum.
 
„Hallærið mikla“ (an Gorta Mór) er heiti fyrirlestursins og mun Helga Einarsdóttir vera fyrirlesarinn á hátíðinni í ár. Helga er þjóðfræðingur sem nam Í Cork á Írlandi og starfaði um tíma við Þjóðminjasafnið í Dublin.
 
Fjallað verður um hungursneyð, sjúkdóma og fólksflótta frá Írlandi á milli 1845 og 1852 vegna kartöflumyglu sem herjaði um alla Evrópu.
Í lok fyrirlesturs verða umræður og boðið er upp á léttar veitingar, kaffi og kartöflukonfekt.
 
Verið öll velkomin.

GPS punktar

N64° 19' 10.748" W22° 2' 42.652"

Staðsetning

Stúkuhúsið