Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

ÞOKA - opnun myndlistarsýningar

24. október kl. 18:00-20:00
Sýningin Þoka eftir Aldísi Petru Sigurðardóttir verður haldin á Bókasafni Akranes í tilefni Vökudaga á Akranesi.
 
Opnun verður 24.október milli kl 18:00-20:00.
 
Sérstök laugardagsopnun verður einnig 26.okt frá 11:00-14:00.
 
Myndlistarsýningin Þoka speglar mismunandi skynjanir af Þoku - því dularfulla og óljósa sem þokan býr yfir. Hvernig hún getur breytt landslaginu, skapað dýrmæt augnablik, vakið upp tilfiningar & skapað nýtt andrúmsloft áhorfandans.
 
Þokan hefur þann eiginleika að geta bæðið falið og afhjúpað eitthvað nýtt og ævintýrakennt í náttúru og samspil hvernig umhverfið hefur áhrif á skapandi ferli listamannsins.
 
Ath. Ég mun sjálf mögulega ekki vera á staðnum þann 24.okt þar sem ég er komin 38 vikur á meðgöngunni minni en við vonum það besta og ég vonast til að sjá sem flesta.
- Aldís Petra Sigurðardóttir

GPS punktar

N64° 19' 19.561" W22° 4' 16.172"

Staðsetning

Bókasafn Akraness