Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Reykholtshátíð 2024

26.-28. júlí

Reykholtshátíð var stofnuð árið 1997 og telst því til elstu tónlistarhátíða landsins. Hátíðin hefur ávallt verið haldin í kringum vígsluafmæli Reykholtskirkju sem ber upp á síðasta sunnudag júlímánaðar.

Yfirskrift hátíðarinnar, sígild tónlist í sögulegu umhverfi, lýsir vel inntaki hennar og áherslum. Sveitasælan í Reykholti og fagur hljómburður Reykholtskirkju veitir bæði áheyrendum og tónlistarmönnum tækifæri til að upplifa hágæða tónlistarflutning á einum sögufrægasta stað Íslands.

Listrænir stjórnendur Reykholtshátíðar hafa komið úr röðum helsta tónlistarfólks þjóðarinnar en lögð er áhersla á fagmennsku og gæði, bæði í dagskrárgerð og tónlistarflutningi. Í gegnum árin hafa margir frábærir listamenn, innlendir sem erlendir, komið fram á Reykholtshátíð og nokkur íslensk tónskáld hafa samið verk sérstaklega fyrir hátíðina, m.a. Þorkell Sigurbjörnsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Þórður Magnússon og Hugi Guðmundsson.​

Bakhjarlar hátíðarinnar eru: 

 

Nánari upplýsingar á reykholtshatid.is 

Miðasala á Tix.is 

GPS punktar

N64° 39' 52.923" W21° 17' 36.273"

Staðsetning

Reykholt, Borgarbyggð