Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

STURLUHÁTÍÐ 2024

13. júlí kl. 13:00
Sturlufélagið heldur árlega Sturluhátíð laugardaginn 13. júlí nk.
Hátíðin er kennd er við sagnaritarann mikla Sturlu Þórðarson, sem bjó að Staðarhóli í Dölum.
Hátíðin hefst við Staðarhól, Saurbæ í Dölum, með afhjúpun söguskilta sem Sturlufélagið hefur látið útbúa og gefa innsýn í sögu sagnaritarans, Staðarhóls og héraðsins. Að því loknu förum við í sögugöngu með leiðsögn um Staðarhól. Að lokinni þessari dagskrá á Staðarhóli verður haldið að Laugum í Sælingsdal, þar sem dagskráin heldur áfram og verða bornar fram kaffiveitingar, í boði Sturlufélagsins, að gildum og góðum íslenskum sið.
Dagskrá:
Kl. 13 - Afhjúpun söguskilta og söguganga - Staðarhóli í Saurbæ í Dölum.
Kl. 15 - Sturluhátíð - Dalahótel að Laugum í Sælingsdal.
Ræður flytja:
- Einar K. Guðfinnsson formaður Sturlufélagsins, setur hátíðina.
- Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
- Sverrir Jakobsson, deildarforseti og prófessor við Háskóla Íslands.
- Óttar Guðmundsson, geðlæknir.
Tómas R. Einarsson bassaleikari ásamt Óskari Guðjónssyni gítarleikara flytja tónlist. Sömuleiðis mun Tómas, sem er uppalinn á Laugum, lesa kafla úr ný útkominni endurminningabók sinni "Gangandi bassi".
Aðgangur að hátíðinni er ókeypis og eru allir velkomnir.
Sturlufélagið býður upp á kaffiveitingar að hætti heimamanna.

GPS punktar

N65° 21' 41.370" W21° 55' 26.332"

Staðsetning

Staðarhóll í Saurbæ og Dalahótel að Laugum